|
Sigrún Jóhannesdóttir
1936‒2025
Mágkona mín, Sigrún Jóhannesdóttir frá Heiðarbæ, eiginkona Gunnars tvíburabróður míns er látin 88 ára að aldri. Hún var lengst af við bærilega heilsu, en síðustu árin sótti að henni minnistap þannig að hún missti að mestu tengsl við umhverfi sitt. Þá kom sér einkar vel góð aðhlynning á vistheimilinu Sóltúni skammt frá heimili þeirra hjóna.
Gunnar og Sigrún kynntust um svipað leyti og við Kristín gengum í hjónaband erlendis. Við komu okkar til Reykjavíkur sumarið 1963 höfðu þau þegar stofnað heimili að Sólheimum 30 í Reykjavík og eldri dóttirin Margrét hafði fæðst 1960. Ólíkt okkur sem áttum heimili í Neskaupstað í 42 ár voru þau alla tíð búsett í Reykjavík þar sem þeim bættist yngri dóttirin Gerður 1964.
Rætur Sigrúnar voru í Heiðarbæ á Þingvöllum. Eftir skólagöngu á Laugarvatni lærði hún ýmislegt heima og erlendis, m.a. tengt saumatækni og textíl. Hún miðlaði þekkingu sinni á fjölda námskeiða og á ýmsum vinnustöðum í um aldarfjórðung. Verkleg kunnátta hennar og smekkvísi setti ætíð svip á einkar myndarlegt heimili þeirra hjóna, sem fluttust frá Sólheimum yfir í Eskihlíð og þaðan í Tómasarhaga 47, þar sem þau áttu heima í meira en aldarþriðjung.
Fyrir utan dagleg störf sameinaði tónlistaráhugi þau hjón, Sigrúnu og Gunnar, með óvenjulegum hætti. Birtist hann almenningi við ótal tækifæri í söng þeirra í hartnær hálfa öld. Þannig gáfu þau 1978 út hljómdisk undir heitinu Söngvísur sem nutu mikilla vinsælda og eru lögin varðveitt í segulbandasafni Ríkisútvarpsins. Eddukórinn með átta söngvurum sem þau Sigrún og Gunnar voru hluti af, gaf á áttunda áratugnum út lög frá ýmsum löndum auk safns íslenskra þjóðlaga á afmælisárinu 1974. Þátttaka í Óperukórnun var þeim mikilsvirði. Undir aldamót sendu þau svo frá sér hljómdisk helgaðan Bellmann á Íslandi. Tónlistaráhuginn fluttist sem vænta mátti til afkomenda þeirra, þar sem dóttirin Gerður hefur lengi verið í röð fremstu fiðluleikara, lengst af starfandi erlendis.
Við Kristín þökkum Sigrúnu mágkonu langa og gefandi samveru um leið og við sendum Þórdísi systur hennar, Gunnari eiginmanni og öllum afkomendum samúðarkveðjur.
Hjörleifur Guttormsson |