Þorkell Sigurbjörnsson
1947 – 2026

Þann 29. janúar sl. lést Þorkell Sigurbjörnsson smiður á Egilsstöðum og ferðabóndi á Hafursá í Skógum eftir erfið  veikindi um nokkurra mánaða skeið. Hann fæddist þar á bæ 31. desember 1947 og var þannig kominn á 79. aldursár. Með honum er fallinn frá mikill völundur, sem skilur eftir sig mörg góð handverk eystra. Fjölmargir þekktu hann og eftirlifandi eiginkonu hans Önnu Valgerði Hjaltadóttur frá Borgarfirði eystra. Þau endurbyggðu fyrir síðustu aldamót íbúðarhúsið á Hafursá, en það  hafði stórskemmst í eldi 1973. Hafursá sem bújörð hafði því að mestu verið í eyði í tvo áratugi. Þar er nú tvílyft steinhús með kjallara, upphaflega fullbyggt í áföngum 1936 af Oddi Kristjánssyni húsasmið 1936. Nýja bæjarstæðið var rétt innan við  gamla torfbæinn sem stóð þar sem var geymsla fram til um 1950 og ég man vel eftir frá barnsaldri. Eftir endurbyggingu íbúðarhússins hófu hjónin  Þorkell og Annagerður þar rekstur ferðamannabýlis að sumarlagi. Auk íbúðarhússins er þarna stór skemma sem þau byggðu svo og eldhús í fyrrum fjósi, sem þau hafa hvorttveggja nýtt til veisluhalda. Jafnframt byggðu þau tvo ferðamannaskála og  nýlega  bættist við lítið íbúðarhús þeirra við hlið skemmunnar litlu  utar. Hafursá hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna sem ferðamannastaður, meðal annars vegan rómaðs útsýnis inn yfir Lagarfljót til Fljótsdals og Snæfells. Fjölskylda undirritaðs hefur dvalið þar sl. 12 ár um vikutíma síðsumars og ferðast þaðan til fjölmargra staða austanlands.

Hjörleifur Guttormsson


Til baka | | Heim