Hjörleifur Guttormsson | 25. janúar 2013 |
Kveðjuávarp á flokksráðsfundi VG Fundarstjóri, góðir fundarmenn. Ég ætla ekki að þreyta ykkur á langri upptalningu á hrapalegum mistökum og óverjandi ákvörðunum síðustu fjögur ár. Nú í ársbyrjun sendi ég þingflokki VG bréf og gerði að umtalsefni vinnubrögðin við aðildarumsókn að ESB og ákvarðanir um úthlutun sérleyfa til olíuvinnslu á Drekasvæði. Að vanda komu engin viðbrögð. En þau eru reyndar fleiri stóru málin sem hrúgast hafa upp, nú síðast vinnubrögðin í stjórnarskrármálinu. Stærst er þó ákvörðunin um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Það er göróttasti kokteill sem blandaður hefur verið um langt skeið, óverjandi, siðlaus og eitraður fyrir flokkinn. Ég líkti þessu við „tundurskeyti” vorið 2009. Ómerkilegast var að láta líta svo út sem verið sé að sækja um ESB-aðild „til að þjóðin gæti tekið ákvörðun um málið“. VG sem flokkur bæri samkvæmt því enga ábyrgð á fyrirhuguðum aðildarsamningi. Enginn slíkur samningur gat hins vegar orðið til nema með samþykki beggja ríkisstjórnarflokka og þar með uppáskrift VG. Hér var ekki verið að sækja um aðild þjóðarinnar vegna, heldur til þess eins að halda ríkisstjórninni á lífi. Á landsfundinum 2011 var líka ályktað um norðurslóðir og að umhverfissjónarmið og hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar ætti ávallt að leggja til grundvallar auðlindanýtingu þar, ekki síst með tilliti til loftlagsbreytinga. Í hrópandi mótsögn við þetta tók formaður flokksins sér nýverið fyrir hendur, óvænt og umræðulaust, að styðja leitar- og olíuvinnsluleyfi – með möguleika á framlengingu til allt að 30 ára. Þannig eru refirnir skornir í flokki sem hefur sjálfbæra þróun að leiðarljósi á hátíðarstundum. Góðir fundarmenn. Svona þurfti þetta ekki að þróast, ef allt hefði verið með felldu. Því miður sé ég þess engin merki að Eyjólfur hressist. Þvert á móti er siglt hraðbyri upp í fjöru, með sömu áhöfn við stýri, forystu sem komið hefur flokknum í þessa dapurlegu stöðu. Ég kveð Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, hér og nú, með blendnum tilfinningum, reynslunni ríkari, og þakka um leið mörgum ykkar fyrir langa og um margt ánægjulega samfylgd. Lifið heil. Hjörleifur Guttormsson |