| Hjörleifur Guttormsson | 7. apríl 2026 |
| Þingvallanefnd bregst þjóðinni og skyldum sínum Þjóðin fékk um það vitneskju úr fjölmiðlum um liðna helgi (27. mars) að Þingvallanefnd hafi heimilað einkaaðilum tónleikahald á þeirra eigin vegum og gegn gjaldtöku í Þjóðgarðinum á Þingvöllum þann 20. júní næstkomandi. Opinber tilkynning á þessum áformum hafði engin verið, áður en þessi ákvörðun var tekin og kynnt, að því er virðist samhljóða af nefndinni, en forsætisráðherra er áður sagður hafa lýst sig samþykkan henni. Hér er um stórt og afdrifaríkt mála að ræða sem stangast á við anda og eðli laganna um friðun Þingvalla, sem í 1. grein kveða á um að svæðið sé “friðlýstur helgistaður allra Íslendinga”. Þar hafa engir hliðstæðir viðburðir átt sér stað, enda segir í 4. grein: “Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslensku þjóðarinnar. Það má aldrei selja eða veðsetja.” Hvernig fær það staðist að heimila nú einkaaðila forræði til athafna og gjaldtöku á kjarna þessa verndaða sögustaðar, þar sem miðaverð er sagt verða um 20 þúsund krónur í forsölu? Undirritaður átti sæti í Þingvallanefnd í 12 ár 1980-1992. Á þeim tíma var mörkuð stefna Þingvallnefndar í skipulagsmálum þjóðgarðsins. Við kjarna þeirrar stefnumörkunar hefur ekki verið hróflað síðan. Með ákvörðun um stórtónleika á vegum einkaaðila er nú lagt inn á nýja og óræða braut, sem auðvitað hefði fordæmisgildi. Stjórnvöld gerðu rétt í að aflýsa þessu óráði og hlúa þess í stað að sjálfbærri stefnu fyrir þennan helgistað. Hjörleifur Guttormsson Birtist í Morgunblaðinu 2. apríl 2026 Hjörleifur Guttormsson |
|