| Hjörleifur Guttormsson | 8. ágúst 2026 |
| Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Mbl. 8. ágúst 2026 Enn og aftur erum við minnt rækilega á það þessa sumamánuði að brýnasta verkefni mannkyns jafnhliða friðsamlegri sambúð er að hverfa frá notkun kola og olíutengdra orkugjafa. Nýlegar fréttir utan úr heimi hafa ekki síst snúist um skógarelda og flótta fjölda borgarbúa frá heimilum sínum í Frakklandi og á Spáni. Í Norður-Afríku hefur hitastig nálgast áður óþekktar hæðir og náð allt að 49 gráðu hita, sem stofnar lífi manna í óbærilega hættu. Í öðrum heimshlutum hafa einnig geisað óveður með mannskæðum hamförum og gróðureldum. Parísarsamkomulagið 2015 Miklar vonir voru bundnar við Parísarsamkomulagið svonefnda frá í desember 2015, en fundurinn þar var 21. formlega ársþing Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, sem var einn ávöxtur Ríó-ráðstefnunnar 1992. Um það sagði ég á þessum vettvangi 15. desember 2015 m.a.:
Árlegir fundir - sá næsti í Tyrklandi Loftslagsfundir Sameinuðu þjóðanna (COP) hafa verið haldnir árlega frá 1994, síðast í borginni Belém í Brasilíu í nóvember 2025. Það var 10. fundur eftir Parísarsamkomulagið 2015 og voru við hann bundnar talsverðar væntingar. Þar var reynt að vinna upp margvíslegan slaka aðildarríkja í framkvæmd stefnumiðanna frá París 2015. Bandaríkin undir Trump sem forseta hafa ítrekað sagt sig frá þátttöku í COP-fundunum og lýst andstöðu við hvers kyns takmarkanir í losun. Næsti fundur COP-31 verður haldinn 9.–20. nóvember í Antalya í Tyrklandi með fulltrúum frá 197 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Áhersluatriði á undirbúningsstigi eru sögð vera að minnka úrgang, vernda sjó og votlendi, tryggja fæðuöryggi og loftslagsvænni borgir. Reynslan af vaxandi umhverfisógnum þetta árið hlýtur jafnframt að setja mark sitt á þessa heimsráðstefnu. Brýnt er að tryggja öfluga og vandaða þátttöku af Íslands hálfu í COP-31. Hjörleifur Guttormsson |
|