Hjörleifur Guttormsson

Æviágrip:1)

HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON. Landsk. alþm. (Austurl.) 1978-1979, alþm. Austurl. 1979-1999 (Alþb., Óh.). 2. varaforseti Nd. 1988-1991, 1. varaforseti Nd. 1991, 3. varaforseti Alþingis 1991. Iðnaðarráðherra 1978-1979 og 1980-1983.
      

F. á Hallormsstað 31. okt. 1935. For.: Guttormur Pálsson (f. 12. júlí 1884, d. 5. júní 1964) skógarvörður þar (Ættarskrá XIX.) og k. h. Guðrún Margrét Pálsdóttir (f. 24. sept. 1904, d. 19. nóv. 1968) vefnaðar- og hannyrðakona, móðursystir Jóns Helgasonar alþm. og ráðherra. K. (18. des. 1957) Kristín Guttormsson (Maria Christine, f. Bartl, f. 12. okt. 1935) læknir við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. For.: Willy Bartl og k. h. Anna Klara Bartl, f. Schuster. Sonur: Einar (1958).
      Stúdentspróf MA 1955. Diplom-próf í líffræði frá háskólanum í Leipzig 1963, assistent við Hygiene-stofnun háskólans 1963. Kynnisferð til Bandaríkjanna vegna náttúruverndar 1971 og vegna skólamála í nóvember 1973.
      Vann við landbúnaðarstörf, skógrækt, landmælingar, þýðingar og túlkun á námsárum. Kenndi nútímaíslensku við norrænudeild háskólans í Leipzig samhliða námi 1958-1961. Starfsmaður á rannsóknastofu Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað 1963-1964. Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1964-1973, framhaldsdeildir frá 1968. Stundakennari við Námsflokka Neskaupstaðar og Iðnskóla Austurlands 1964-1973. Starfaði að náttúrurannsóknum, einkum á Austurlandi, 1968-1978, fyrst samhliða kennslustörfum, síðar á vegum Náttúrugripasafnsins í Neskaupstað. Undirbjó stofnun þess safns 1965-1971 og veitti því forstöðu 1971-1978. Átti sæti í Náttúruverndarráði 1972-1978 og var fulltrúi á átta náttúruverndarþingum 1972-1992. Margvísleg störf á vegum Náttúruverndarráðs 1972-1978. Frumkvöðull að Safnastofnun Austurlands og stjórnarformaður hennar 1972-1978. Formaður byggingarnefndar Menntaskólans á Egilsstöðum 1973-1978. Skip. iðnaðarráðherra 1. sept. 1978, lausn 12. okt. 1979, en gegndi störfum til 15. okt. Skip. iðnaðarráðherra 8. febr. 1980, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.
      Forgöngumaður að stofnun Náttúruverndarsamtaka Austurlands (NAUST) 1970 og formaður þeirra 1970-1979. Sat í nóv.-des. 1971 á þingi Sameinuðu þjóðanna vegna undirbúnings að umhverfisráðstefnunni í Stokkhólmi. Fulltrúi í sendinefnd Íslands á Stokkhólmsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi mannsins 1972 og á Ríó-ráðstefnunni um umhverfi og þróun 1992. Í stjórn Sósíalistafélags Neskaupstaðar 1964-1968. Formaður Alþýðubandalagsfélagsins í Neskaupstað 1965-1967 og 1976-1978. Formaður kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Austurlandi 1966-1968. Fulltrúi í miðstjórn Alþýðubandalagsins síðan 1974. Í Þingvallanefnd 1980-1992. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1984 og 1994. Í Norðurlandaráði síðan 1988, í forsætisnefnd ráðsins 1993-1995. Í Evrópustefnunefnd Alþingis 1988-1991. Í þingmannanefnd EFTA/EES 1995. Formaður nefndar um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur 1989-1990, formaður nefndar um mótun ferðamálastefnu 1989-1990. Var í jafnréttisnefnd 1991-1992, í nefnd um endurskoðun laga um náttúruvernd 1991-1992 og í hvalanefnd 1993-1994.

       Hefur ritað um náttúruvernd, orkumál, náttúrurannsóknir, jafnréttismál, þjóðmál o.fl.

1)Skrifstofa Alþingis: Æviágrip þingmannsins er byggt á Alþingismannatali 1995. Síðast breytt 25. maí 1999.