Hjörleifur Guttormsson | 13. júlí 2008 |
Í neti svikinna kosningaloforða Einhverjir héldu að með því að blaðra á dögunum um að setja ætti rannsóknaboranir í Gjástykki í mat á umhverfisáhrifum væri iðnaðarráðherrann að hugga umhverfissinnað fólk í eigin flokki. Þetta er greinilega algjör misskilningur. Ráðherrann ætlar að láta framkvæmdaleyfi forvera síns, Jóns Sigurðssonar, standa og því verður ekki breytt með umhverfismati. Í viðtalinu lætur Össur hins vegar að því liggja að Skipulagsstofnun geti með áliti sínu stöðvað slíka framkvæmd. Á því hefur þvert á móti verið hamrað síðustu mánuði að slíkt vald hafi Skipulagsstofnun ekki eftir að lögum var breytt 2005, sbr. 11. og 13. grein laga nr. 101/2000. Kórónan í viðtalinu er svo krafa iðnaðarráðherrans um að lögð verði ný hálendislína milli Kárahnjúkavirkjunar og Húsavíkur. Muna menn ekki að Halldór Ásgrímsson og aðrir talsmenn fyrir Kárahnjúkavirkjun héldu því stíft fram að með virkjun fyrir austan væru raflínur til annarra landshluta óþarfar og menn spöruðu sér slíka fjárfestingu? Er nema von að formaður Samfylkingarinnar og þingflokksformaðurinn Lúðvík fullyrði í dag í fjölmiðlum að fullkominn einhugur ríki innan Samfylkingarinnar um Fagra Ísland! Sjaldan hefur mislukkuðu slagorði verið snúið svo gersamlega á haus. Hjörleifur Guttormsson |